Léleg frammistaða

Ég hef staðið mig illa við bloggið, en ég ætlaði að senda svona þrjár til fjórar nýjar vísur í viku hverri.

Til að gera þó eitthvað sendi ég gamla bloggvísu eftir mig.

Nú skal hefja bögublogg,
býsna leirugt að ég hygg,
enda skal ég ybba gogg
allt þar til ég dauður ligg.

Þessi bragarháttur heitir gagaraljóð, en afbrigðið heitir gagaravilla, sem er þannig að endarímið myndar innbyrðis sniðrím.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

 Ein hringhend hraðsuða

 

Kvæðin þín ég leirug les

ljóðin fín og stöku þras,

krydduð gríni, klúr og spes,

-kannski pínu ástarmas.

  Kv.  Pétur Stef.

        
 

Pétur Stef (IP-tala skráð) 13.3.2007 kl. 20:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband